og fjölmargar landnámshænur ásamt öðrum dýrum sem þangað sækja, - aðallega fljúgandi.
Í Hlésey eru hin heiðnu goð blótuð í Hléseyjarhofi, hlúð að dýrum og börnum og tré ræktuð. Þar er unnið handverk úr náttúrulegum efnum, ýmsar nytjavörur og skrautmunir og margt af því í víkingastíl.
Þar er rýnt í rúnir og þær bæði lesnar og ristar. Þar er einnig margt skrifað og skrafað um lífið og tilveruna og rætt við heimsbyggðina með radíóbylgjum. Það tekur u.þ.b. 40 mínútur að aka úr miðborg Reykjavíkur til Hléseyjar.
Í Hlésey ríkja sættir og grið eins og sagan gerir ráð fyrir.