hofid
Hjónavígsla í Hléseyjarhofi, Hofstjörn í baksýn

Blótstaður

Fyrsta mannvirkið sem reis í Hlésey var ásatrúarhof. Ekkert heiðið hof var fyrir á Íslandi sem er undarlegt í landi sem byggir sína dýrmætu menningu á sköpun heiðinna manna og sögnum af norrænni goðafræði.
Hofið er gert úr torfi í anda fornra sagna af hofum heldri bænda. Það er opið í höfuðáttir, í miðju þess er eldker úr grjóti og á sumrin er það skreytt með ýmsum munum eftir því sem veður leyfir.
Mörg einkablót og minni athafnir eru haldnar í Hléseyjarhofi og þar hittist reglulega hópur manna af ýmsum trúarbrögðum.
Hléseyjarbændur bregðast vel við þeim sem hafa áhuga á að koma í hofið, og þar er blótað til allra goða og góðra vætta.
Að sið Hléseyjar hinnar fornu munu þar ríkja sættir og grið meðal manna og allur vopnaburður, jafnt málma sem tungna forboðinn.

Hafa samband - sjá hér að neðan