gestir

Frjósemisguð hyllur

Picture 044
Dálíðið dularfull og mönguð mynd af Kjalnesingagoða reyna að kveikja bál í hofinu í slagvirðinu.
það voru sannkallaðar valkyrjur sem mættu í Hlésey í gær til að blóta Frey, Freyju og fullu tungli. Þrjár ungu kvennanna eiga von á barni svo það var ekki hægt að kvarta undan fjarveru frjósemisguðsins Freys!
matarg

Frábærar umræður og góður matur
Stelpurnar komu kyfjaðar hollum og góðum veitingum sem viðbót við blómkálssúpu og kaffi staðarins. Að kvennasið útbjuggum við matinn saman og síðan var sest að snæðingi í stofunni.
Ég var því miður ýmislegt að stússast og missti því af miklu, en naut þess í botn að fylgjast með gestum mínum og hlusta á þær og skjóta orði að við og við.
Umræðurnar fóru um víðan völl, en eins og alltaf þegar heiðnar konur hittast og voru umræðuefnin næg, vitræn og manneskjuleg. Margt merkilegt dúkkaði þar upp:
Huldufólk og óvenjulegir hæfileikar, matargerð, góð ráð við ýmsum kvillum, sögur af fólki í óvenjulegum kringumstæðum, umræða um málvernd, mannanöfn á Íslandi, umhverfismál af ýmsu tagi og auðvitað kreppan, svindlið og svínaríið sem olli henni og skortur á ábyrgð, virðingu og heiðarleika sem heiðnir menn reyna að tileinka sér. Það ríkti glaðværð, einhugur og hlýja.
kvennabl

Nýtt upphaf
Það var ekki alveg jafn hlýtt úti, hálfgert slagviðri með slyddu en hraustar konur létu það sem vind um eyrun þjóta og fóru í fylkingu niður í hofið. Það hafðist fyrir einarðan vilja og styrk Þórs að kveikja upp í blautum kubbnum og konurnar skýldu eldinum með likama sínum. Eins og alltaf þegar blót er haldið er verndarhendi haldið yfir okkur og eldurinn hélst lifandi meðan allar konurnar drukku heill nýs lífs og betri tíðar. Þegar búið var að drekka heill allan hringinn slokknaði eldurinn sjálfkrafa og við sendar heim aftur í hlýja stofnuna og afgangana þar sem biðu ekki síðri umræður um allt milli himins og jarðar.
Þetta kvöld í Hlésey markaði nýtt upphaf, nýjan hring lífsins,- ekki bara nátturunnar sem er að vakna og nýrra kynslóða heldur nýrra heita. Heiðnar konur þurfa að eiga vettvang að hittast og ég mun aftur taka upp slíka fundi.
Þetta er svo góður félagsskapur og má alls ekki glatast.