ungarhaenur
Páskaungar ............... og Jóhanna með Skruggu og Flekku - (fleiri myndir)

Ungar og nýorpin egg!

Í Hlésey eru frjálsar landnámshænur á vappi. Þær éta gróður og skordýr og holla afganga frá heimilinu.
Þær eru litfagrar og skemmtilegar og verpa dásamlega bragðgóðum og vistvænum eggjum sem tínd eru strax og kæld. Hænurnar verpa í hreina varpkassa svo aldrei þarf að þvo eggin með efnablöndum.
Hjá okkur er hægt að kaupa nýorpin egg til matar, en einnig seljum við frjó egg til útungunar, ókyngreinda landnámshænuunga og stálpaða, kyngreinda unga handa þeim sem vilja velja sér fallega hænu eða hana.
Við leggjum metnað í að halda hænunum okkar heilbrigðum og fallegum og allir ungar eru vandir við manninn til þess að þeir verði “félagslyndir” fuglar og óhræddir við fólk.

Jóhanna skrifar vefinn haena.is , en þar má finna góða fræðslu fyrir þá sem vilja halda og rækta hænur

Pantanir: Unga og egg til útungunar þarf að panta fyrirfram og sömuleiðis egg í áskrift. Stundum eigum við egg til sölu í lausu. Panta má á netinu eða hringja í Hlésey