horn2
Meðalstórt drykkjarhorn

Handverk er mikils metið í Hlésey.

Þar er unnir margir nytsamlegir munir auk þess sem stundum eru gerðir skartgripir og þá sérstaklega úr horni og skrautlegum fjöðrum landnámshænsnanna. Hvað vinsælust eru þó vegleg og vönduð drykkjarhorn þau eru oftast merkt persónulega og því þarf að panta þau fyrirfram. Margs konar leðurarmbönd og hlífar skreyttar með fornum mynstrum í vikingastíl eru gerð í Hlésey. Útskornar tréskeiðar eru stundum á verkefnalistanum ásamt skurðgoðum en stærri skurðgoðin fara þó aldrei að heiman. Þá er saumaður víkingafatnaður í tau og skinn og prjónað og vattarsaumað úr ull. Í steina og tré eru ristar rúnir bæði til gagns og gamans fyrir gesti og gangandi.

Hægt er að panta stærri gripina og velkomið að hafa samband og gera boð á undan sér ef einhver vill koma og skoða handverkið.