Galdratákn guðanna


Veistu hve rista skal?
Veistu hve ráða skal?


Galdratákn guðanna eru byggð á einfaldri náttúruspeki forfeðra okkar. Rúnir voru m.a. notaðar til að styrkja andann og ráða í frumkraftana og kynngimagnaður styrkur þeirra og dulúð höfðar enn til þjóðarinnar.
Rúnirnar eru dýrmætur menningararfur sem ekki má glatast.
Rúnakverið Galdratákn guðanna veitir innsýn í heim rúnanna að fornu og nýju og bregður birtu á þýðingu táknanna.



Runir_utsidur-1





Rúnir í Hlésey

Í seinni tíð hefur færst í aukana að rúnir séu notaðar eins og tarotspil við spádóma. Sumir tengja þær einnig ýmsum fyrirbrigðum svo sem stjörnumerkjum, steinum, trjám, litum, ilmefnum og dýrum. Engin lög banna leik með rúnirnar, en þannig notkun á þó ekkert skylt við upprunalega merkingu þeirra og sögu.
steinar Hléseyjarvölvan les í rúnir
Rúnirnar eru tákn náttúruaflanna, völvur fortíðarinnar lásu í þær “við eld og feld” og menn ráðfærðu sig við þær reglulega. Völvur voru því ekki spákonur í nútímaskilningi þess orðs.
Hver maður býr yfir persónulegum krafti sem stýrir örlögum hans í takti við umhverfi og aðstæður. Nánast undantekningalaust birtast þessi mynstur í rúnum þess sem velur þær. Öll getum við valið um leiðir í lífinu og ef rétt er lesið úr rúnunum má oft koma auga á nýjar og betri leiðir.
Hléseyjarvölvan byggir á meira enn fjörutíu ára viðkynningu við rúnirnar og hefur í heiðri hina fornu norrænu notkun þeirra, ómengaða af fræðum annarra menningarheima. Boðið er upp á tvenns konar þjónustu:
prik Rúnalestur - Galdratákn guðanna

Rúnalestur (Völvuspá)
Í upphafi lestrar er tenging við frumkraftana skoðuð, en síðan lesið í rúnirnar sjálfar með hjálp prika, steina og korta. Að síðustu má spyrja rúnirnar fyrirfram ákveðinna spurninga. Með rúnalestrinum er einnig boðið upp á að líta í spil Óðins (spáspil byggð á galdri Óðins). Rúnalesturinn tekur á bilinu 20-30 mínútur og hægt er að panta tíma fyrir einstaklinga eða 4-6 manna hópa. Semja má við Ferðaþjónustuna í Eyrarkoti í Kjós og Hótel Glym í Hvalfirði um aðstöðu ef hópar vilja njóta veitinga meðan beðið er.

Galdratákn guðanna (fræðsluerindi/kynning)
Rúnirnar eru hluti af menningararfi þjóðarinnar. Þær voru ekki aðeins ritmál okkar við landnám heldur voru þær kyngimagnaður tengiliður okkar við náttúruöflin. Í aldaraðir hafa þær verið notaðar til að efla krafta mannsins með ristum og seiði og sögur til af því hvernig þær voru notaðar í galdri til góðs og ills. Í fræðsluerindinu eru kynnt hin fjölmörgu andlit rúnanna og þáttur þeirra í daglegu lífi manna fyrr og nú. Þátttakendur fá einnig að kynnast þýðingu þeirra og að lokum spyrja þær nokkurra spurninga. Hámarksfjöldi 30 manns.
Pantanir ná senda inn á vefnum en einnig má hringja í Hlésey